10.11.16 - 15:09
Jóhann Ingi Hafþórsson
Benedikt Októ aftur í Fram (Staðfest)

Benedikt Októ þekkir vel til hjá Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Benedikt Októ þekkir vel til hjá Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Benedikt Októ Bjarnason hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram.
Leikmaðurinn er uppalinn hjá Fram en hann hefur leikið með ÍBV síðan 2014 og á þeim tíma leikið 14 leiki með Eyjamönnum.
Benedikt er 21 árs og lék hann fjóra landsleiki fyrir U-17 ára landsliðið á sínum tíma.

„Það er frábært að fá Benna aftur í Fram. Hann hefur eiginleika sem nýtast liðinu og hefur mikinn hraða, kraft og áræðni. Við höfum væntingar til að hans eiginleikar nýtist okkur vel á næstu leiktíð,“ sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fram.