Fotbolti.net
10.11.16 - 17:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Sito frá Fylki til Ottawa Fury (Staðfest)

Sito í leik með Fylki

Sito í leik með Fylki

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Jose Enrique Seoane Vergara, eða Sito eins og hann er jafnan kallaður, hefur sagt skilið við Fylki og skrifað undir samning við Ottawa Fury.
Sito kom til ÍBV á miðju sumri í fyrra og skoraði hann sex mörk í 11 leikjum fyrir þá í Pepsi-deildinni og var virkilega góður.

Fyrir vikið samndi hann við Fylki en Eyjamenn voru ansi ósáttir við það og vildu meina að Fylkismenn hafi brotið lög er þeir ræddu við Spánverjann á meðan hann var á samning hjá ÍBV.

Sito gekk illa að skora í Pepsi-deildinni með Fylki og átti hann sinn hlut í að félagið féll úr deildinni. Hann skoraði aðeins tvö mörk í 20 leikjum í ár.

Ottawa er í næstefstu deild í Bandaríkjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.