Fotbolti.net
10.11.16 - 16:30
Jóhann Ingi Hafþórsson

Tim Sherwood til starfa hjá Swindon (Staðfest)

Tim Sherwood er kominn með vinnu.

Tim Sherwood er kominn með vinnu.

Canon

Mynd: Getty Images

Tim Sherwood hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá C-deildarliðinu Swindown Town.
Sherwood hefur verið án starfs síðan Villa rak hann í október 2015 en hann hefur einnig þjálfað Tottenham.

Luke Williams heldur áfram að þjálfa liðið sem er í fallsæti eftir 16 leiki í deildinni.

„Þetta er ein stærsta ráðning sem félagið hefur gert. Við erum enn í sjokki yfir að okkur hafi tekist að sannfæra hann um að taka starfið,\" sagði stjórnarformaður félagsins, Lee Power.

Á átta mánuðum hjá Villa komst Sherwood í úrslitaleik enska bikarsins en hann var rekinn er félagið var á botni úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.