Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Augsburg þegar liðið tapaði gegn Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í dag.
Alfreð jafnaði í 1-1 á 69. mínútu en Reiss Nelson, lánsmaður frá Arsenal, gerði sigurmark Hoffenheim á 83. mínútu.
Alfreð er kominn með sjö mörk í sex leikjum í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hann er búinn að vera algjörlega frábær fyrir Augsburg.
Markið hans í dag var virkilega snyrtilegt. Það væri svo sannarlæega hægt að sýna ungum framherjum þetta mark og segja „svona á að klára færi."
Markið má sjá hér að neðan.
Sjá einnig:
Væri Alfreð að byrja í þýska landsliðinu?
Athugasemdir