Cardiff City 0 - 1 Bristol City
0-1 Josh Brownhill ('67 )
0-1 Josh Brownhill ('67 )
Bristol City marði Cardiff City, 1-0, í nágrannaslag í ensku B-deildinni í dag en leikurinn fór fram á Millenium-leikvanginum í Cardiff.
Mikill rígur er á milli Bristol City og Cardiff og einkennast leikirnir yfirleitt af mikilli hörku.
Það var ekkert gefið eftir í dag en eina mark leiksins kom á 67. mínútu og var þar að verki Josh Brownhill. Hann skoraði af 25 metra færi. Frábært mark.
Bristol City hefur byrjað leiktíðina vel og er liðið með 28 stig í 6. sæti aðeins fimm stigum á eftir toppliði WBA.
Athugasemdir