Fotbolti.net
10.11.26 - 18:19
Brynjar Ingi Erluson

Alisson valinn leikmaður umferðarinnar

Alisson valinn leikmaður umferðarinnar
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski markvörðurinn Alisson Becker hefur verið valinn besti leikmaður tíundu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar.
Alisson vill framlengja við Liverpool
TENGT EFNI

Alisson vill framlengja við Liverpool

Alisson hefur sætt nokkurri gagnrýni í byrjun tímabilsins og sumir hafa jafnvel farið að velta því fyrir sér hvort hans bestu dagar séu að baki.

Brasilíumaðurinn hefur verið einn besti markvörður heims síðasta áratuginn, en er kominn á seinni hluta ferilsins og frammistaða hans hefur ekki verið jafn sannfærandi að undanförnu. Hann sýndi hins vegar gegn Crystal Palace að hann á enn nóg eftir á tanknum.

Alisson átti hverja stórvörsluna á fætur annarri og lék lykilhlutverk í því að Liverpool landaði 3-1 sigri á Selhurst Park.

Frammistaðan skilaði honum útnefningu sem leikmaður umferðarinnar, en enska úrvalsdeildin greindi frá valinu í dag. Verðskulduð viðurkenning fyrir Brasilíumanninn sem var einn af aðalmönnum Liverpool í sigrinum.

Það eru góð tíðindi fyrir Liverpool að Alisson virðist vera að finna sitt gamla form, en stuðningsmenn félagsins hafa einnig fengið jákvæðar fréttir af framtíð hans.

Markvörðurinn er í viðræðum við Liverpool um nýjan samning og gæti framlengt dvöl sína hjá félaginu um eitt eða tvö ár.

Alisson hefur tvívegis unnið gullhanskann í ensku úrvalsdeildinni og hlaut jafnframt Yashin-bikarinn árið 2019, en þau verðlaun eru veitt besta markverði heims.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.