Fotbolti.net
10.11.26 - 16:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Á endanum var þetta sameiginleg ákvörðun"

Ólafur Ingi Skúlason.

Ólafur Ingi Skúlason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason sagði skilið við Breiðablik eftir síðasta tímabil. Hann hafði stýrt liðinu í rétt rúmlega ár, gerði liðið að bikarmeisturum og undir hans stjórn náði liðið í fimm stig í Sambandsdeildinni.

Fótbolti.net ræddi við Eyjólf Héðinsson, yfirmann fótboltamála hjá Breiðabliki, um þjálfaramálin.
Leiðir Ólafs Inga og Breiðabliks skilja (Staðfest)
TENGT EFNI

Leiðir Ólafs Inga og Breiðabliks skilja (Staðfest)

Varðandi fyrrum þjálfari, er hægt að rýna í það að 5. sætið í Bestu deildinni hafi ekki verið nægilega góður árangur og því hafi verið gerð breyting?

„Á endanum var þetta sameiginleg ákvörðun. Það var ánægja með Ólaf Inga og hans þjálfarateymi. Við náðum góðum árangri í Sambandsdeildinni í fyrra, höluðum inn töluvert af stigum sem skiluðu sér í auknu fjármagni til félagsins. Það var frábært. Við náðum að vinna bikarinn sem var stórkostlegt og tryggir okkur umferðir í Evrópu á næsta ári."

„En Besta deildin gekk upp og ofan, og ýmsar ástæður fyrir því. En á endanum komumst við að sameiginlegri niðurstöðu að það væri kannski best fyrir alla aðila að láta staða numið. Það var ekki þannig að það hafi verið einhver svakaleg óánægja með Óla og þjálfarateymið, frábærir einstaklingar sem gerðu mjög vel hjá félaginu. Á endanum komumst við að þessari niðurstöðu í sameiningu,"
segir Eyjó.
Eyjólfur Héðinsson.

Eyjólfur Héðinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bikarmeistaratitlinum fagnað.

Bikarmeistaratitlinum fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.