10.11.26 - 15:48
Kári Snorrason
Hvað þarf að gera svo konur fái pláss á hliðarlínunni?

Guðrún Þóra Elfar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við hvetjum stelpur til að æfa fótbolta, leggja hart að sér, setja sér markmið og trúa því að þær geti náð langt. En hvað með konur sem vilja ná langt í þjálfun?“

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

„Hvers vegna fá þær þá ekki sambærileg tækifæri hjá félagsliðunum?“

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Guðrún Þóra Elfar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Þóra Elfar, aðstoðarþjálfari kvennaliðs Þróttar, vekur athygli á því í pistli á Facebook að ekkert af 32 liðum í þremur deildum Íslandsmóts kvenna sé með konu sem aðalþjálfara. Þá segir hún að konur í aðstoðarþjálfarastöðum séu örfáar.
„Við hvetjum stelpur til að æfa fótbolta, leggja hart að sér, setja sér markmið og trúa því að þær geti náð langt. En hvað með konur sem vilja ná langt í þjálfun?,“ stendur meðal annars í skrifum Guðrúnar.

Þá bendir hún á að staðan sé allt önnur hjá yngri landsliðum kvenna, þar sem konur stýri öllum liðunum.
„Það sýnir að konur hafa bæði þekkinguna, reynsluna og hæfnina til að leiða lið á háu stigi. Því hlýtur að vakna sú spurning hvers vegna þetta endurspeglast ekki betur hjá meistaraflokksliðum félaganna. Ef konur geta leitt yngri landsliðin, hvers vegna fá þær þá ekki sambærileg tækifæri hjá félagsliðunum?,“ spyr Guðrún jafnframt.
Hún segist ekki gagnrýna að karlar þjálfi konur en hvetur félög til að skoða hvernig þau ráða í þjálfarastöður. Hún segir ekki hægt að tala um að byggja upp kvennafótbolta á meðan konurnar fái ekki almennilegt pláss til að vera með.
Hægt er að lesa pistilinn í heild sinni hér að neðan.