Fotbolti.net
10.11.26 - 16:53
Kári Snorrason

Sonja Björg riftir við Val

Sonja Björg Sigurðardóttir.

Sonja Björg Sigurðardóttir.

Canon

Mynd: Valur

Kvennaboltinn
Sonja Björg Sigurðardóttir hefur rift samningi sínum við Val. Hún var samningsbundin félaginu út næsta tímabil.

Sonja er tvítugur framherji en hún gekk í raðir Vals fyrir tímabil frá Þór/KA, þar sem hún hafði verið í stóru hlutverki. Hún var í takmörkuðu hlutverki á afstöðnu tímabili með Val sem féll niður í Lengjudeildina.
„Tímabilið hjá Val var mér mikil vonbrigði. Ég kom til félagsins eftir að hafa verið í stóru hlutverki í öflugu liði Þórs/KA, en hjá Val þróuðust hlutirnir ekki eins og ég hafði vonast til.”

„Ég hef því tekið þá erfiðu ákvörðun að rifta samningi mínum við félagið með eigin framtíð og framfarir að leiðarljósi. Ég tel mig eiga mikið inni og hlakka til nýs upphafs. Það er auðvitað svekkjandi að þetta hafi ekki gengið betur, en það sem ég tek frá þessu tímabili er frábæra fólkið innan félagsins og auðvitað frábæru stelpurnar í liðinu sem ég mun svo sannarlega sakna,“ segir Sonja eftir riftun.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.