Fotbolti.net
10.11.26 - 19:21
Brynjar Ingi Erluson

De Jong skýtur á áhugafólk um fótbolta - „Skilur ekki hvað er að gerast á vellinum“

De Jong skýtur á áhugafólk um fótbolta - „Skilur ekki hvað er að gerast á vellinum“
Canon

Mynd: EPA

Frenkie de Jong, leikmaður Barcelona og hollenska landsliðsins, telur að margir horfi ekki nægilega vel á fótboltaleiki til að geta myndað sér sanngjarna skoðun á frammistöðu hans.
Hollendingurinn segir að nýja kynslóðin leggi of mikla áherslu á tölfræði, sérstaklega mörk og stoðsendingar, þegar kemur að því að meta frammistöðu leikmanna.

De Jong er hins vegar ekki sú tegund leikmanns sem skorar mikið eða leggur upp fjölda marka. Hann sinnir fyrst og fremst hlutverki á miðjunni sem fer gjarnan fram hjá þeim sem horfa aðeins á tölfræðina.

„Sumir vanmeta mig en aðrir ekki. Það fer svolítið eftir því hvern þú spyrð.“

„Fólk horfir í raun ekki á leikina. Það eru mjög fáir sem horfa á allar 90 mínúturnar og skilur ekki hvað er að gerast á vellinum eða hvers vegna ákveðnar ákvarðanir eru teknar. Auðveldasta leiðin til að dæma leikmann er að horfa á hversu mörg mörk hann skorar eða leggur upp. Það er því auðvitað eðlilegt að þessar tölur séu lægri hjá mér.“

„Ef þú fylgist vel með mér á vellinum þá sérðu hvort ég sé góður leikmaður eða ekki,“
sagði De Jong.

De Jong er tiltölulega nýkominn aftur á völlinn eftir að hafa glímt við meiðsli, en hann hefur leikið fjóra leiki síðan hann sneri aftur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.