Fotbolti.net
10.11.26 - 19:41
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeild kvenna: Öflugt stig hjá Thelmu og Häcken

Thelma byrjaði gegn Chelsea

Thelma byrjaði gegn Chelsea

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

MeistaradeildKvennaboltinn
Thelma Karen Pálmadóttir og stöllur hennar í Häcken gerðu markalaust jafntefli gegn enska stórliðinu Chelsea í deildarkeppni Meistaradeildar kvenna í kvöld.
Thelma var í byrjunarliði sænsku meistaranna í Häcken sem mættu Chelsea, einu sigursælasta liði Englands.

Chelsea hafði yfirhöndina í leiknum en tókst ekki að brjóta vörn Häcken á bak aftur þrátt fyrir rúmlega tuttugu skottilraunir, þar af sex á markið.

Thelma fór af velli þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og Häcken tókst að halda út og tryggja sér mikilvægt stig.

Þetta var annað stig Häcken á tímabilinu og situr liðið í 14. sæti deildarinnar, en Chelsea er í öðru sæti með átta stig.

Real Madrid vann á meðan öruggan 3-0 sigur á Paris FC þar sem Arianna Caruso, Lineth Beerensteyn og Linda Caicedo skoruðu mörk Madrídinga.

Real situr í sjötta sæti með sex stig, en Paris FC féll niður fyrir Häcken í fimmtánda sætið. Bæði lið eru með tvö stig, en Häcken er með betri markatölu.

Häcken 0 - 0 Chelsea

Real Madrid 3 - 0 Paris FC
1-0 Arianna Caruso ('55 )
2-0 Lineth Beerensteyn ('65 )
3-0 Linda Caicedo ('81 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.