Fotbolti.net
10.12.16 - 06:30
Jóhann Ingi Hafþórsson

KA-menn gáfu veikum börnum 200 þúsund krónur

Við athöfnina í gær.

Við athöfnina í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Meistaraflokkur karla hjá KA gerði heldur betur góðverk í gær.
Þeir gáfu þá barnadeild sjúkrahússins á Akureyri sektarsjóðinn sinn sem hljómaði upp á heilar 200 þúsund krónur!

Petar Ivancic, liðsstjóri KA setti færslu inn á Facebook síðu sína þar sem hann og nokkrir leikmenn KA eru á spítalanum með gjöfina.

„Mfl. KA var í dag í heimsokn á barnadeild FSA og gaf þeim 200 þúsund úr sektarsjóð okkar!!! Doctorinn er ekkert smá ánægður með strákana (Staðfest). Jólin eru að byrja gott folk!!!\" segir í Facebook-færslunni.

Svona á svo sannarlega að dreifa jóla-andanum í byrjun desember.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.