Jaap Stam, fyrrum leikmaður Manchester United, viðurkennir að Virgil van Dijk, leikmaður Liverpool, gæti verið betri en hann sjálfur þegar hann var leikmaður.
Van Dijk hefur þróast í að verða einn besti varnarmaður heims, hann vann Meistaradeildina með Liverpool fyrr á þessu ári og veitti Lionel Messi samkeppni um Ballon d'Or gullknöttinn.
Van Dijk hefur þróast í að verða einn besti varnarmaður heims, hann vann Meistaradeildina með Liverpool fyrr á þessu ári og veitti Lionel Messi samkeppni um Ballon d'Or gullknöttinn.
Stam vann þrennuna hjá United og er talinn einn besti varnarmaður síns tíma. Báðir eru Hollendingar.
„Hann ólst ekki upp í akademíu PSV eða Ajax. Hann bjó til sinn eigin feril með því að byrja hjá minni liðum, fara til Skotlands og þar með komast til Bretlandseyja. Hann lagði á sig vinnu og það skilaði sér," segir Stam um Van Dijk.
Hann var spurður að því hvernig Van Dijk væri í samanburði við sjálfan sig?
„Mögulega er hann betri en ég var. Ég veit það ekki. Hann er spila gríðarlega vel."
Athugasemdir