Leik Manchester City og West Ham sem var frestað vegna óveðurs síðastliðinn sunnudag hefur verið settur á miðvikudaginn 19. febrúar klukkan 19:30.
Þetta þýðir að bæði lið hafa samþykkt það að vetrafrí þeirra verði stytt en erfitt hefur verið að finna tíma fyrir leikinn til þess að fara fram.
Þetta þýðir að bæði lið hafa samþykkt það að vetrafrí þeirra verði stytt en erfitt hefur verið að finna tíma fyrir leikinn til þess að fara fram.
Manchester City mætir West Ham einunis þremur dögum áður en liðið ferðast til Leicester þann 22. febrúar og fjórum dögum eftir þann leik mætir liðið Real Madrid á Bernabeu í Meistaradeildinni.
Þegar 13 leikir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni er City heilum 22 stigum á eftir Liverpool en West Ham er í fallsæti sem stendur.
💨 After its postponement at the weekend, Manchester City v West Ham has been rescheduled...
— Sporting Life Football (@SportingLifeFC) February 11, 2020
🗓 Wednesday 19 February
⏱ 7.30pm kick-off
📺 Live on Sky Sports
🏆 Premier League#MCFC #WHUFC #MciWhu #StormCiara pic.twitter.com/6qbxI2zTNF
Athugasemdir