Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 11. febrúar 2021 09:00
Magnús Már Einarsson
Mourinho um fjarveru Bale: Getum ekki talað um meiðsli
Gareth Bale
Gareth Bale
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, gaf skrýtin svör þegar hann var spurður út í fjarveru Gareth Bale í 5-4 tapinu gegn Everton í enska bikarnum í gærkvöldi.

Bale hefur lítið spilað á tímabilinu en hann birti mynd af sér á Instagram daginn fyrir leik þar sem hann var á æfingu. Þrátt fyrir það var hann ekki í leikmannahópnum í gær.

„Við spiluðum gegn West Brom á sunnudaginn og hann spilaði ekki. Á mánudaginn var ég smá hissa að hann vildi fara í skoðun því að honum leið illa í vöðva og hann æfði ekki á mánudag," sagði Mourinho eftir leikinn í gærkvöldi.

„Á þriðjudaginn æfði hann með liðinu en ég fékk þær upplýsingar síðan frá íþróttavísindasviðinu um að hann vildi vinna með þeim í að styrkja vöðvasvæðið þar sem honum leið illa og þess vegna er hann ekki hér."

„Ég held að þetta séu ekki skýr og augljós meiðsli. Ég myndi segja að hann finni fyrir óþægindum og þess vegna gat hann ekki verið 100% á æfingunni. Ég held hins vegar að við getum ekki talað um meiðsli."

Athugasemdir
banner
banner