11.02.22 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þórðardætur semja út 2023 - Ásta Sól mætt heim (Staðfest)

Mynd: Selfoss

Mynd: Selfoss

Á miðvikudag var greint frá því að tvíburasysturnar Íris Una og Katla María Þórðardætur væru gengnar í raðir Selfoss frá Fylki.
Þær stigu sín fyrstu skref í meistaraflokki með Keflavík en hafa undanfarin tvö ár leikið í Árbænum.

Selfoss sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem kom fram að þær skrifa undir tveggja ára samning við félagið.
„Fyrir utan það að vera góðar í fótbolta og styrkja hópinn okkar með fótboltalegum gæðum þá eru þær alveg frábærir karakterar sem munu leggja sig allar í að hjálpa liðinu að stíga þau skref sem við ætlum okkur í ár," sagði Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss.
Þetta eru ekki einu tíðindi gærdagsins frá Selfossi því Ásta Sól Stefánsdóttir er mætt aftur til félagsins eftir tvö tímabil með Haukum.
Þær Ásta Sól, Íris og Katla eru allar fæddar árið 2001.

Ásta Sól

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét