11.03.19 - 18:30
Arnar Daði Arnarsson
Ingi Freyr lánaður í KF (Staðfest)

Ingi Freyr í leik með Þór í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ingi Freyr í leik með Þór í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Varnarmaðurinn, Ingi Freyr Hilmarsson hefur verið lánaður í KF frá Þór Akureyri.
KF var einu stigi frá því að komast upp í 2. deildina í sumar og því leikur liðið áfram í 3. deildinni á komandi sumri.
KF var einu stigi frá því að komast upp í 2. deildina í sumar og því leikur liðið áfram í 3. deildinni á komandi sumri.
Ingi Freyr þekkir vel til í Fjallabyggðinni þar sem Ingi er uppalinn í Leiftri frá Ólafsfirði. Hann á að baki 199 meistaraflokksleiki á ferlinum hér á landi.
Hann hefur leikið með Þór frá 2011. Auk þess hefur hann leikið með KA, KS/Leiftri, Leiftur/Dalvík og í Noregi.
Hann hefur leikið með Þór frá 2011. Auk þess hefur hann leikið með KA, KS/Leiftri, Leiftur/Dalvík og í Noregi.
