Fotbolti.net
11.03.22 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þórhildur spilar með ÍBV í sumar (Staðfest) - Spilaði síðast 2018

Þórhildur í leik með ÍBV árið 2014.

Þórhildur í leik með ÍBV árið 2014.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
ÍBV tilkynnti í dag að þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Þórhildur Ólafsdóttir hefðu skrifað undir samning við ÍBV.

Sjá einnig:
Kristín Erna aftur til Eyja (Staðfest) (17. feb)
Kristín (1991) og Þórhildur (1990) hafa báðar alist upp innan félagsins og hafa leikið fjölmarga leiki fyrir ÍBV.

Þórhildur spilaði sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk kvenna árið 2005 en hún hefur síðan þá leikið 144 leiki fyrir hjá ÍBV. Hún hefur einnig leikið með Þór/KA og Fylki og býr yfir mikilli reynslu. Síðast lék Þórhildur með Fylki árið 2018 en hún lék síðast fyrir ÍBV 2015. Hún hafði félagaskipti í ÍBV fyrir síðasta tímabil og spilaði sinn fyrsta leik í þrjú og hálft ár í síðasta mánuði.

Kristín Erna spilaði sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk kvenna árið 2007 og hefur síðan þá leikið 232 leiki fyrir félagið, líkt og Þórhildur hefur hún mikla reynslu en hún hefur reynt fyrir sér hjá Fylki, KR og Víkingi með góðum árangri. Síðast lék Kristín fyrir ÍBV árið 2019 en hún lék með Víkingi á síðasta tímabili og skipti svo yfir til Trani á Ítalíu síðasta haust.

Af ÍBVSport:
Þórhildur leikur á miðjunni en Kristín er sóknarmaður og hafa þær báðar leikið frábærlega í Lengjubikarnum það sem af er. ÍBV gerir miklar væntingar til leikmannanna og koma þær til með að styrkja leikmannahópinn verulega.

Komnar
Ameera Hussen frá Bandaríkjunum
Haley Thomas frá Bandaríkjunum
Kristín Erna Sigurlásdóttir frá Ítalíu
Sandra Voitane frá Austurríki
Sydney Carr frá Bandaríkjunum
Þórhildur Ólafsdóttir tekur fram skóna

Farnar
Annie Williams til Svíþjóðar
Auður S. Scheving í Val (var á láni)
Clara Sigurðardóttir í Breiðablik
DB Pridham til Svíþjóðar
Eliza Spruntule hætt
Kristina Erman til Belgíu
Liana Hinds
Sigríður Sæland Óðinsdóttir
Jóhanna Helga Sigurðardóttir
Kristjana Sigurz Kristjánsdóttir í Breiðablik (var á láni)
Ingunn Þóra Kristjánsd. Sigurz í Breiðablik (var á láni)

Heimild: ÍBV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.