Fotbolti.net
11.04.18 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Andri Björn og Alex Gammond í Ægi (Staðfest)

Andri Björn Sigurðsson.

Andri Björn Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson

Ægir hefur fengið Andra Björn Sigurðsson og Alex James Gammond til liðs við sig fyrir átökin í 3. deildinni í sumar.

Andri Björn er 28 ára gamall framherji sem kemur frá Þrótti Vogum.

Í fyrra skoraði Andri tólf mörk í tuttugu leikjum með Þrótti í 3. deildinni og bikarkeppninni.
Andri þekkir til hjá Ægi því hann spilaði nítján leiki með liðinu þegar það féll úr 2. deildinni árið 2016.

Alex er miðjumaður frá Wales en hann er 23 ára gamall.

Báðir leikmennirnir eru komnir með leikheimild fyrir leik Ægis gegn ÍR í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins á morgun.

Andri mætir þar uppeldisfélagi sínu en hann ólst upp hjá ÍR og hóf meistaraflokksferil sinn þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.