11.04.18 - 12:34
Magnús Már Einarsson
Brittany Basinger og Megan Dunnigan í Stjörnuna (Staðfest)

Megan Dunnigan í leik með FH.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Megan Dunnigan í leik með FH.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Stjarnan hefur fengið Brittany Basinger og Megan Dunnigan í sínar raðir fyrir keppni í Pepsi-deild kvenna í sumar.
Megan þekkir til í íslenska boltanum því hún var í lykilhlutverki hjá ÍA sumarið 2016 og hjá FH í fyrra. Megan er fjölhæfur leikmaður en hún spilaði bæði á miðjunni og í fremstu víglínu hjá FH í fyrra.

Megan féll nýverið út í síðasta niðurskurði Houston Dynamo í bandarísku atvinnumannadeildinni. Hún er væntanleg til Íslands í fyrramálið.
Brittany Basinger er varnarmaður en hún var einn af bestu leikmönnum háskólaboltans í Bandaríkjunum í fyrra og var því valin númer 21 í nýliðavali bandarísku atvinnumannadeildarinnar í byrjun árs.
Rétt eins og Megan féll hún út í síðasta niðurskurði síns liðs, Washington Spirit. Hún er væntanleg til Íslands í næstu viku.
Stjarnan hefur leik gegn Breiðabliki í Pepsi-deild kvenna þann 3. maí. Áður en að því kemur mætir liðið Val í undanúrslitum Lengjubikarsins á sunnudaginn.
Komnar
Birna Kristjánsdóttir frá Noregi
Birta Guðlaugsdóttir frá Víkingi Ó.
Brittany Basinger frá Bandaríkjunum
Megan Dunnigan frá FH
Farnar
Agla María Albertsdóttir í Breiðablik
Gemma Fay
Lorina White til Svíþjóðar
Kim Dolstra til Noregs
Donna Kay Henry
Kristrún Kristjánsdóttir Ólétt