Fotbolti.net
11.04.18 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Mate Coric og Milan Stavric í Fjarðabyggð (Staðfest)

Dragan Stojanovic þjálfari Fjarðabyggðar.

Dragan Stojanovic þjálfari Fjarðabyggðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjarðabyggð hefur fengið Mate Coric og Milan Stavric til liðs við sig fyrir sumarið í 2. deildinni.
Milan er þrítugur framherji frá Serbíu en hann spilaði síðast í Grikklandi.

Mate er 23 ára kantmaður sem var síðast á mála hjá félagi í heimalandi sínu Króatíu.

Fyrr í vikunni gekk sóknarmiðjumaðurinn Aleksandar Stjokovic til liðs við Fjarðabyggð en hann kemur til félagsins frá Víði Garði.

Allir leikmennirnir eru komnir með leikheimild fyrir leik Fjarðabyggðar og Hattar í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins annað kvöld.

Fjarðabyggð heimsækir síðan Kára í fyrstu umferð í 2. deildinni sunnudaginn 6. maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.