Fotbolti.net
11.04.26 - 14:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arteta: Gerðum marga skrítna hluti

Arteta: Gerðum marga skrítna hluti
Canon

Mynd: EPA

Arsenal tapaði gegn Bournemouth í úrvalsdeildinni í dag. Þetta tap þýðir að Man City, sem á tvo leiki til góða, getur verið þremur stigum á eftir Arsenal í titilbaráttunni um næstu helgi. Þá mætast einmitt City og Arsenal.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, sagði að þetta tap hafi verið eins og högg í andlitið.
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Þetta er mikið högg í andlitið, nú snýst þetta um hvernig við bregðumst við. Hrós á þá hvernig þeir fóru að þessu, það er ekki að ástæðulausu að þeir hafi ekki tapað í síðustu ellefu leikjum," sagði Arteta.

„Fyrsta tækifærið sem þeir fengu þá fór boltinn af varnarmanni, mjög slæmur varnarleikur og það kostaði okkur mark. Við verðum að takast á við það andlega, við reyndum að jafna kkur og þrýsta á þá, við skoruðum úr víti og þá býstu við öðruvísi leik. En við gerðum marga skrítna hluti í dag."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.