Liverpool 2 - 0 Fulham
1-0 Rio Ngumoha ('36 )
2-0 Mohamed Salah ('40 )
1-0 Rio Ngumoha ('36 )
2-0 Mohamed Salah ('40 )
Englandsmeistarar Liverpool komu sér í góða stöðu í baráttu um Meistaradeildarsæti er þeir lögðu Fulham að velli, 2-0, á Anfield í dag, en þetta var fyrsti deildarsigur liðsins síðan í febrúar.
Arne Slot gerði nokkrar áhugaverðar breytingar á liðinu og byrjaði meðal annars hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha sem átti eftir að reynast þeim mikilvægur.
Liverpool var mjög áræðið í byrjun leiks og mátti sjá bætingu á liðinu frá síðustu leikjum.
Mohamed Salah fékk gott færi snemma leiks sem Bernd Leno varði en Fulham náði að vinna sig inn í leikinn og ógna með skyndisóknum.
Ngumoha náði hins vegar að drepa í augnabliki Fulham-manna er Florian Wirtz lagði boltann út á vinstri kantinn á Ngumoha sem tók nokkrar gabbhreyfingar áður en hann skrúfaði boltanum neðst í hægra hornið.
Þetta var annað deildarmark hans og það fyrsta sem hann skorar á Anfield.
Fjórum mínútum síðar átti hann síðan þátt í öðru marki Liverpool er hann kom boltanum inn á Cody Gakpo sem framlengdi boltann til hliðar á Mohamed Salah. Egyptinn sem hefur verið í slöku formi á tímabilinu, var hins vegar öruggur og setti boltann nokkuð þægilega í vinstra hornið.
Sterkt hjá Liverpool að skora tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks og fékk liðið færin til þess að loka leiknum með þriðja markinu en Gakpo fór illa með góðar stöður.
Þegar tólf mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fór um stuðningsmenn Liverpool þegar Emile Smith Rowe fékk frábært færi en hann setti boltann framhjá markinu.
Alexander Isak spilaði síðustu tuttugu mínúturnar en hann var að spila sinn fyrsta deildarleik síðan í desember en hann kom einnig við sögu gegn PSG í Meistaradeildinni í vikunni.
Hann og Liverpool-liðið gerðu vel að loka þessum leik og er það nú með 52 stig í 5. sæti deildarinnar, fjórum stigum fyrir ofan Chelsea sem á heimaleik gegn Manchester City á morgun. Fulham er í 11. sæti með 44 stig.


