Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
   lau 11. apríl 2026 14:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fleiri félög að berjast um Oliver
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Greint var frá því hér á Fótbolta.net í gær að króatíska félagið NK Lokomotiva Zagreb hafi samþykkt tilboð Keflavíkur í Oliver Heiðarsson. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net þyrfti Keflavík ekki að borga fyrir hann en króatíska félagið fengi 20% af næstu sölu.

Oliver gekk til liðs við króatíska félagið frá ÍBV í janúar en hann hefur ekki náð að sýna sig þar og tækifærin hafa vægast sagt verið af skornum skammti. Hann hefur ekki komið við sögu í deildarleik og verið utan hóps í síðustu sex leikjum.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa Valur og KA mikinn áhuga á honum. Fótbolti.net hefur fengið staðfest að Valur sé í viðræðum um að fá hann í sínar raðir. Breiðablik, FH og ÍBV hafa einnig verið nefnd til sögunnar.

Oliver er 25 ára gamall leikmaður og hefur spilað með Þrótti, FH og ÍBV hér á landi. Hann á að baki 124 meistaraflokksleiki á Íslandi og hefur skorað í þeim 29 mörk.


Útvarpsþátturinn - Óheppileg mistök og vítakall
Slapp
banner
banner
banner