Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   lau 11. apríl 2026 19:31
Snæbjört Pálsdóttir
Karólína Lea: Þetta snýst um meira en bara fótbolta hjá þeim
Eimskip
Karólína Lea segir Ísland þurfa að sýna yfirburði sína gegn Úkraínu.
Karólína Lea segir Ísland þurfa að sýna yfirburði sína gegn Úkraínu.
Mynd: KSÍ
Karólína Lea vill sjá meiri áræðni í sóknarleik íslenska liðsins.
Karólína Lea vill sjá meiri áræðni í sóknarleik íslenska liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjámlsdóttir segir komandi heimaleiki gegn Úkraínu og Englandi mjög mikilvæga og komi á hárréttum tíma, þar sem mikið er undir í baráttunni um þriðja sæti riðilsins.

„Bara gríðarlega mikilvægt, kemur á góðum tíma myndi ég segja, þar sem síðustu leikir fóru eins og þeir fóru. Gaman líka að spila við Úkraínu sem er kannski aðeins slakara lið en Spánn og England. Við erum fyrir fram betri aðilinn en við þurfum að sýna það á þriðjudaginn,“ sagði Karólína þegar Fótbolti.net ræddi við hana.


Hún segir kröfurnar innan liðsins skýrar.

„Við þurfum einfaldlega að vinna þessa leiki til að ná þriðja sætinu og komast í umspil fyrir HM. Við setjum þær kröfur á okkur sjálfar.“

Að hennar sögn þarf liðið að vera vel undirbúið fyrir krefjandi mótherja.

„Þær eru hrikalega beinskeyttar og fara beint fyrir aftan vörnina okkar. Við þurfum að passa það og svo snýst þetta líka um meira en bara fótbolta hjá þeim. Það er mikið þjóðarstolt út af öllu sem er í gangi, þannig að við þurfum að matcha þær þar.“

Karólína segir liðið þurfa að bæta sóknarleikinn eftir markalausan síðasta glugga.

„Við þurfum bara að setja boltann yfir línuna. Vera beinskeyttari, þora meira, þetta snýst fyrst og fremst um hugrekki. Við höfum gæðin til að skapa okkur færi og skora mörk, það gekk ekki síðast en vonandi gengur það núna.“

Að lokum leggur hún áherslu á mikilvægi stuðningsins úr stúkunni.

„Við viljum fá sem flesta á völlinn. Ég held að það verði geggjað veður og það er engin ástæða fyrir því að mæta ekki. Við þurfum á ykkur að halda sem þjóð.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp