Víkingur heiðraði minningu stórsöngvarans Björgvins Halldórssonar í hálfleik í opnunarleik Bestu deildarinnar, stórleik Víkings og Breiðabliks.
Í hálfleik voru bara spiluð lög með Björgvin og mynd af honum varpað á vallarklukkuna.
Í hálfleik voru bara spiluð lög með Björgvin og mynd af honum varpað á vallarklukkuna.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 1 Breiðablik
Björgvins var minnst í tengslum við fleiri íþróttaviðburði í gær en fyrir handboltaleik Hafnarfjarðarliðanna Hauka og FH var mínútuþögn en Björgvin fæddist í Hafnarfirði 16. apríl 1951.
Hann hóf ungur tónlistarferil sinn og varð fljótt einn vinsælasti og afkastamesti söngvari landsins. Björgvin lést í vikunni, 74 ára að aldri.
Gullvagninn var meðal laga sem ómuðu í Fossvoginum í hálfleik í gær.

