Fotbolti.net
11.04.26 - 17:22
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu glæsilegt mark Ngumoha fyrir Liverpool - Salah tvöfaldaði forystuna

Rio Ngumoha skoraði annað deildarmark sitt á tímabilinu

Rio Ngumoha skoraði annað deildarmark sitt á tímabilinu

Canon

Mynd: EPA

Hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha skoraði annað deildarmark sitt fyrir Liverpool á tímabilinu er hann kom liðinu í 1-0 forystu gegn Fulham á Anfield og bætti Mohamed Salah við öðru aðeins fáeinum mínútum síðar.
Liverpool-liðið var líflegt fyrstu mínúturnar og vantaði bara upp á herslumuninn fræga til þess að ná inn marki.

Það gerði Ngumoha. Hann fékk boltann vinstra megin frá Florian Wirtz, tók nokkrar gabbhreyfingar áður en hann stýrði boltanum með hægri fæti í hægra hornið. Bernd Leno reyndi að teygja sig út í boltann en skotið var öruggt og hnitmiðað.

Sjáðu markið hjá Ngumoha

Nokkrum mínútum síðar bætti Mohamed Salah við öðru marki Liverpool.

Ngumoha átti sendingu inn á teiginn á Cody Gakpo sem framlengdi hann áfram á Salah sem skrúfaði boltanum síðan neðsti í vinstra hornið. Mikil gleði hjá Salah sem var að gera sjötta mark sitt á tímabilinu.

Sjáðu markið hjá Salah
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.