Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
banner
   lau 11. apríl 2026 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sölvi opnar sig: Það erfitt að þú átt erfitt með svefn
Sölvi Geir Ottesen og Aron Elís Þrándarson
Sölvi Geir Ottesen og Aron Elís Þrándarson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Kristinn Bjarnason
Jóhannes Kristinn Bjarnason
Mynd: Víkingur R.
Víkingur hóf leik í Bestu deildinni í gær þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Breiðabliki á heimavelli. Liðið ætlar sér stóra hluti á tímabilinu en hópurinn er mjög stór.

Þeir Jóhannes Kristinn Bjarnason, Ármann Ingi Finnbogason, Aron Elís Þrándarson og Róbert Orri Þorkelsson voru allir utan hóps í gær.

„Það er það erfitt að þú átt erfitt með svefn, þú hugsar meira um það en leikinn sjálfan. Þetta er leiðinlegasti parturinn af þjálfarastarfinu, að skilja menn eftir utan hóps," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.

„Við viljum hafa breiðan hóp, við ætlum okkur stóra hluti í sumar og þetta er ein leið sem við ætlum að prófa og reyna gera atlögu á allar keppnir. Við vissum að þetta gæti orðið raunveruleikinn, að allir væru heilir og þá myndi ég þurfa að hafa fjóra fyrir utan hóp."

„Það á það enginn skilið því þeir eru allir búnir að vera frábærir. Þetta eru fjórir sem hefðu getað verið með og hefðu getað byrjað leikinn. Það eru svo mikil gæði í öllum hópnum að ég hefði getað byrjað þeim inn á í dag og það hefði verið nógu gott lið til að gera sömu hluti og hinir gerðu."

„Ég þarf að velja leikmenn sem ég tel að henti til að vinna þennan leik og þetta taldi ég besta hópinn."
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Slapp
banner
banner