11.05.17 - 20:37
Magnús Már Einarsson
Kristófer Páll aftur í Leikni F. (Staðfest)

Kristófer fagnar einu af mörkum sínum með Leikni í fyrra.

Mynd: Raggi Óla

Kantmaðurinn ungi Kristófer Páll Viðarsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Leikni F. á láni frá Víkingi R. Kristófer Páll skoraði tíu mörk með Leikni í Inkasso-deildinni í fyrra og átti stóran þátt í að liðið hélt sæti sínu í deildinni.
Kristófer er uppalinn á Fáskrúðsfirði en hann samdi við Víking árið 2015. Síðan þá hefur hann farið til Leiknis á láni á sumrin.
Síðastliðið haust fór Kristófer til KA á láni. Á dögunum fór hann þaðan til Fylkis en stoppið var stutt í Árbænum og hann er nú farinn aftur í Leikni. Ástæðan eru mikil meiðsli sem Kristófer hefur verið að glíma við en hann missir af fystu leikjum sumarsins vegna þeirra.
„Ég var meiddur mest megnið af vetrinum þannig ég hef misst af almennilegu undirbúningstímabili,\" sagði Kristófer Páll við Fótbolta.net.
„Núna þegar ég er búinn að vera æfa í 2 vikur þá er hnéð aftur að klikka eitthvað. Hnéð hefur verið að stríða mér síðustu 3 ár meira og minna. Ég á að vera 4-6 vikur að koma mér aftur á fullt núna segja menn.\"
Leiknir gerði 2-2 jafntefli við Gróttu í 1. umferð Inkasso-deildarinnar en það mun styrkja sóknarleik liðsins mikið þegar Kristófer verður klár í slaginn í næsta mánuði.