11.05.17 - 11:59
Magnús Már Einarsson
Þórhallur Kári í Hauka (Staðfest)

Þórhallur Kári Knútsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórhallur Kári Knútsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar hafa fengið Þórhall Kára Knútsson til liðs við sig á láni frá Stjörnunni.
Þórhallur Kári getur leyst allar fremstu stöðurnar á vellinum en hann var í láni hjá Víkingi Ólafsvík fyrri hlutann á síðasta tímabili.
Þórhallur spilaði þá tíu leiki í Pepsi-deildinni áður en hann fór aftur í Stjörnuna þar sem hann lék einn leik.
Árið 2015 skoraði Þórhallur þrjú mörk í tólf leikjum í Pepsi-deildinni með Stjörnunni.
Haukar unnu Þrótt 2-1 í fyrstu umferð Inkasso-deildarinnar síðastliðinn laugardag.
Næsti leikur liðsins er gegn Fram á Laugardalsvelli annað kvöld en Þórhallur Kári er kominn með leikheimild fyrir þann leik.