11.05.18 - 14:44
Elvar Geir Magnússon
Andreas Larsen í mark Víkings R. (Staðfest)

Andreas Larsen.

Mynd: Getty Images

Andreas Larsen.

Mynd: Getty Images
Víkingur Reykjavík hefur komist að samkomulagi við Lyngby BK í Danmörku um félagaskipti markvarðarins Andreas Larsen í Víking.
Andreas kom með Víkingi í æfingaferð til Tyrklands í vor, en ekki gat orðið af félagaskiptum vegna meiðsla markmanna hjá Lyngby BK á þeim tímapunkti.
Andreas er 27 ára gamall og hefur leikið með Lyngby frá árinu 2015.
„Víkingur hefur lagt mikla vinnu í markmannsleit eftir að ljóst varð að Róbert Örn Óskarsson myndi ekki leika með félaginu í sumar. Aris Vaporakis sem kom til Víkings á láni frá Helsingor fyrir tímabilið meiddist í leik gegn Val í síðustu viku og verður frá keppni í 3-4 vikur,\" segir í tilkynningi Víkinga.
„Víkingur lýsir yfir ánægju með að hafa samið við Andreas og bindur miklar vonir við að hann standi sig vel hjá félaginu.\"

Vaporakis fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í markalausu jafntefli Víkings gegn Val. Hinn ungi Emil Andri Auðunsson fór þá í markið og stóð sig vel.
Víkingur er með fjögur stig eftir tvær umferðir í Pepsi-deildinni en liðið mætir Stjörnunni í Garðabæ á mánudaginn.
Mættur í Draumaliðsdeildina
Andreas er mættur í Draumaliðsdeild Eyjabita. Kemst hann í þitt lið?
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!