11.05.18 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Davíð Ingvars og Þórhallur Kári í Hauka (Staðfest)

Þórhallur Kári Knútsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórhallur Kári Knútsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar hafa náð samkomulagi við Stjörnuna um að fá kant og sóknarmanninn Þórhall Kára Knútsson í sínar raðir. Þá hafa Haukar fengið Davíð Ingvarsson á láni frá Breiðabliki.
Davíð er vinstri kantmaður fæddur 1999 en hann er því ennþá gjaldgengur í 2. flokk. Hann spilaði einn leik með Blikum í Pepsi-deildinni í fyrra.
Þórhallur Kári er 22 ára gamall en hann þekkir til hjá Haukum því hann spilaði ellefu leiki hjá liðinu í Inkasso-deildinni í fyrra á láni frá Stjörnunni.
Árið 2015 skoraði Þórhallur þrjú mörk í tólf leikjum með Stjörnunni í Pepsi-deildinni en ári síðar var hann á láni hjá Víkingi Ólafsvík.
Þórhallur hefur verið í námi í Bandaríkjunum en hann mun nú hjálpa Haukum í baráttunni í Inkasso-deildinni í sumar.
Haukar gerðu 2-2 jafntefli við Þór í fyrstu umferðinni en næsti leikur liðsins er gegn Magna á morgun.

Stjarnan hefur komist að samkomulagi við Hauka um félagaskipti á Þórhalli Kára Knútssyni og mun hann ganga til liðsins síðar í dag. Við þökkum Þórhalli fyrir frábær ár í Stjörnunni og óskum honum góðs gengis í nýju félagi. pic.twitter.com/STAxzgX57o
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) May 11, 2018