Fotbolti.net
11.05.18 - 11:22
Magnús Már Einarsson

Garðar Jó og Atli Jónasson í KFG (Staðfest)

Garðar er mættur í KFG.

Garðar er mættur í KFG.

Canon

Mynd: KFG

KFG hefur fengið framherjann reynda Garðar Jóhannsson í sínar raðir fyrir átökin í 3. deildinni í sumar.

Hinn 38 ára gamli Garðar ætlaði í KFG fyrir síðasta tímabil en hann fór síðan í KR þar sem hann spilaði þrettán leiki í Pepsi-deildinni í fyrra.

Garðar er fyrrum atvinnu og landsliðsmaður en hann lék með Fylki sumarið 2016 eftir nokkur ár hjá uppeldisfélagi sínu Stjörnunni. Hann gæti myndað reynslumikið framherjapar hjá KFG með félaga sínum Veigari Páli Gunnarssyni.
KFG hefur einnig fengið markvörðinn Atla Jónasson í sínar raðir. Atli er uppalinn í KR en hann hefur undanfarin ár spilað með KV í 2. deildinni.

Þá hefur KFG líka fengið Finn Axel Hansen í sínar raðir frá Álftanesi þar sem hann var lykilmaður í fyrra.

KFG fær KF í heimsókn í fyrstu umferðinni í 3. deildinni á morgun en liðinu er spáð toppsætinu í sumar í spá þjálfara í deildinni.
Atli Jónasson.

Atli Jónasson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.