11.05.18 - 14:57
Magnús Már Einarsson
Grétar Sigfinnur í KV (Staðfest)

Grétar Sigfinnur Sigurðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grétar Sigfinnur Sigurðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn reyndi Grétar Sigfinnur Sigurðarson hefur gengið til liðs við KV í 3. deildinni.
Hinn 35 ára gamli Grétar Sigfinnur hætti hjá Þrótti í byrjun árs en hann hefur nú fengið félagaskipti í KV. Grétar er sigursæll leikmaður sem hefur áður leikið með KR, Val og Víkingi R. svo eitthvað sé nefnt.

Sigurvin Ólafsson og Kristinn Jóhannes Magnússon hafa einnig fengið félagaskipti í KV og möguleiki er á að þeir komi við sögu hjá liðinu í sumar.
Sigurvin og Björgvin Vilhjálmsson þjálfa lið KV í sameiningu. Sigurvin er 41 árs gamall en hann spilaði áður með ÍBV, KR og FH. Síðast spilaði hann í deildarkeppni með KFS árið 2014.
Kristinn er fyrrum leikmaður KR og Víkings R. en hann lagði skóna á hilluna eftir sumarið 2015.
KV er spáð botnsætinu í spá þjálfara í 3. deildinni í sumar en liðið fær Einherja í heimsókn í 1. umferð deildarinnar á morgun.

Sigurvin Ólafsson spilaði bikarleik með Ármanni í vor.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Jóhannes Magnússon.

Mynd: Fótbolti.net