11.05.18 - 15:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimir las upp mögnuð viðbrögð leikmanna sem ekki voru valdir

Heimir Hallgrímsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Hallgrímsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er auðvitað erfitt sem landsliðsmaður Íslands í fótbolta að fá þau skilaboð að þú munir ekki taka þátt með liðinu í stærstu fótboltaleikjum Íslandssögunnar.
Sú varð raunin fyrir nokkra leikmenn í dag er landsliðshópurinn sem fer á HM var tilkynntur.
Margir öflugir leikmenn sem hafa verið í hópnum í síðustu verkefnum voru ekki valdir í dag. Þeir sem hafa verið í síðustu hópum en voru ekki valdir í dag fengu að vita af því í morgun.

Þeir sem ekki voru valdir fengu skilaboð frá Heimi Hallgrímssyni um það í morgunsárið. Eftir fundinn í dag fór Heimir í útsendingu á Vísi.is og Stöð 2 Sport. Þar sýndi hann skilaboðin sem hann sendi leikmönnum og svör sem hann hafði fengið til baka.
Ekki er hægt að segja annað en að svörin sýni vott af mikilli fagmennsku. Heimir segist hafa fengið gæsahúð.
Í einum skilaboðum sem Heimir fékk til baka frá leikmanni stóð:
„Takk fyrir skilaboðin. Gangi ykkur sem allra best, ég er hrikalega stoltur að hafa verið hluti af þessum hópi. Mun peppa strákanna alla leið. Mundu að ég er alltaf klár.\"
Í öðrum skilaboðum stóð:
„Sæll. Auðvitað svekkjandi, ég var alls ekki undirbúinn fyrir þetta. Ég óska ykkur alls hins besta og mun verða stuðningsmaður núna. Ég er að sjálfsögðu alltaf klár ef kallið kemur. Ég er líka glaður fyrir hönd vina minna sem fengu ekki að upplifa EM og eru mögulega í hópnum að þessu sinni. Bestu kveðjur.\"
„Þetta sýnir hversu miklir liðsmenn þessir strákar eru, hversu þéttur og góður þessi hópur er. Þú ert að fá verstu fréttir á knattspyrnuferlinum þínum en sérð samt ástæðu til þess að segja, \'Allt í lagi, áfram gakk. Áfram þið, og áfram við. Ég styð strákanna sem eru að fara alla leið.\' Ef þetta er ekki eitthvað sem gefur þér gæsahúð og góða tilfinningu, þá veit ég ekki hvað. Þetta er erfitt.\"
KSÍ hefur skilað 35 nafna lista til FIFA og því eru tólf leikmenn á biðlista ef forföll verða.
Á biðlista
Ögmundur Kristinsson (Excelsior)
Ingvar Jónsson (Sandefjord)
Jón Guðni Fjóluson (Norköping)
Hjörtur Hermannsson (Bröndby)
Theodór Elmar Bjarnason (Elazgispor)
Arnór Smárason (Hammarby)
Rúnar Már Sigurjónsson (St. Gallen)
Elías Már Ómarsson (IFK Gautaborg)
Viðar Örn Kjartansson (Maccabi Tel Aviv)
Andri Rúnar Bjarnason (Helsinborg)
Kjartan Henry Finnbogason (Horsens)
Kolbeinn Sigþórsson (Nantes)
Sjá einnig:
Heimir: Mun erfiðara val en fyrir EM
Theodór Elmar: Verð stuðningsmaður númer eitt

Heimild: Vísir.is

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð