11.05.18 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Landsliðsmaðurinn Brenton Muhammad í Vestra (Staðfest)

Brenton Muhammad.

Mynd: Vefur Ægis

Brenton Muhammad.

Mynd: Vefur Ægis
Vestri hefur fengið markvörðinn Brenton Muhammad í sínar raðir. Brenton er landsliðsmarkvörður Antígva og Barbúda sem er í 124. sæti á heimslista FIFA.
Hann þekkir vel til hér á landi. Brenton kom fyrst til Íslands árið 2015 og spilaði þá með Ægi í 2. deild. Hann skipti yfir í Tindastól 2016 og hefur verið á Sauðárkróki síðustu tvö ár.

Í fyrra var hann einn besti markvörður 2. deildar með Tindastóli.
Hann hefur ákveðið að söðla um núna og hefur samið við Vestra. Vestri er í 2. deild, líkt og Tindastóll.
Markvörðurinn efnilegi Daði Freyr Arnarsson er í Vestra, hann var lánaður þangað frá FH í febrúar. Spurning er hvort hann verður áfram fyrst Brenton er kominn eða hvort hann og Brenton verði í samkeppni um sæti í byrjunarliðinu.
Vestri gerði 2-2 jafntefli gegn Leikni F. í sínum fyrsta leik í 2. deildinni í sumar. Næsti leikur liðsins er á morgun gegn Hetti á heimavelli.
Vestra er spáð 3. sæti í 2. deildinni í sumar.
Sjá einnig:
Tindastóll fékk markvörð frá Úrúgvæ til að leysa Brenton af hólmi.