Fotbolti.net
11.05.18 - 14:51
Magnús Már Einarsson

Rennico Clarke kominn með leikheimild með FH (Staðfest)

Rennico Clarke.

Rennico Clarke.

Canon

Mynd: Portland Timbers

Varnarmaðurinn Rennico Clarke er kominn með leikheimild með FH og getur því spilað sinn fysta mótsleik með liðinu gegn Fjölni í þriðju umferð Pepsi-deildarinnar á sunnudaginn.
Clarke er miðvörður frá Jamaíka en hann samdi við FH þann 9. apríl.

Hægara sagt en gert var hins vegar að ganga frá pappírsmálum og fá leikheimild. Hann var því ekki með í 1-0 sigrinum á Grindavík í fyrstu umferð og í 3-1 tapinu gegn Breiðabliki á mánudaginn.

„Það hefur verið svakaleg flækja á þessum pappírsmálum. Hann er með vegabréf frá Jamaíka og verið í Bandaríkjunum í þrjú ár. Það þarf sakavottorð frá báðum löndum og ekki hægt að senda þetta. Hann er í sólinni í Jamaíka að standa í pappírsveseni,\" sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, við Fótbolta.net í síðustu viku.

Guðmundur Kristjánsson hefur verið í miðverði í fyrstu tveimur leikjum FH í sumar en hann gæti nú mögulega farið á miðjuna og Clarke komið inn í vörnina gegn Fjölni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.