11.05.19 - 10:28
Arnar Daði Arnarsson
Guðni Sigþórsson lánaður í Magna (Staðfest)

Guðni í leik með Þór í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni í leik með Þór í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magni hefur fengið Guðna Sigþórsson á láni frá Þór. Guðni sem er tvítugur er uppalinn í Magna og því er hægt að segja að hann sé kominn heim í Grenivíkina.
Guðni lék 24 leiki með Þór í deild og bikar í fyrra í Inkasso-deildinni og kom inná sem varamaður í 2-3 tapi Þórs á Dalvík/Reyni í Mjólkurbikarnum á þessu tímabili.

Nú er hinsvegar ljóst að hann leikur með Magna í Inkasso-deildinni í sumar en þetta er mikil styrking fyrir liðið sem tapaði 4-1 gegn Leikni R. í 1. umferð deildarinnar um síðustu helgi.
Liðið mætir Keflavík í Boganum seinna í dag og Guðni er kominn með leikheimild með liðinu og gæti því spilað sinn fyrsta meistaraflokksleik með Magna í dag.
Hann lék sína fyrstu leiki með Þór í Inkasso-deildinni sumarið 2016. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann spilað 40 leiki með Þór og skorað í þeim fjögur mörk.