Fotbolti.net
11.05.19 - 09:36
Elvar Geir Magnússon

Herrera kveður Man Utd (Staðfest)

Ander Herrera er á leið til PSG.

Ander Herrera er á leið til PSG.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski miðjumaðurinn Ander Herrera yfirgefur Manchester United þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið. Þetta hefur verið staðfest á samfélagsmiðlum Manchester United.

Þar er birt myndband þar sem þessi 29 ára leikmaður kveður stuðningsmenn United.
Herrera kom til United frá Athletic Bilbao 2014 en talið er að hann hafi nú gert samkomulag við Frakklandsmeistara Paris St-Germain.

United reyndi að halda Herrera en ekki náðist samkomulag. Leikmaðurinn var pirraður yfir því hve langan tíma það tók fyrir félagið að bjóða honum nýtt samningstilboð.

Herrera fór þá fram á að fá laun í takt við launahæstu leikmenn félagsins en United var ekki tilbúið í að samþykkja það.

Ekki er vitað hvort Herrera hafi þegar leikið sinn síðasta leik fyrir United eða hvort hann verði með í úrvalsdeildarleiknum gegn Cardiff í lokaumferðinni á morgun.

Herrera skoraði 20 mörk í 189 leikjum fyrir United og vann FA-bikarinn, deildabikarinn og Evrópudeildina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.