11.05.19 - 10:15
Arnar Daði Arnarsson
Þorsteinn Örn lánaður í Hauka (Staðfest)

Þorsteinn Örn í leik með KR í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn Örn í leik með KR í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar hafa fengið Þorstein Örn Bernharðsson á láni frá KR.
Hann er kominn með leikheimild með liðinu og gæti því verið í hóp í fyrsta sinn í dag þegar Haukar taka á móti Víkingi Ólafsvík í 2. umferð Inkasso-deildarinnar.
Hann er kominn með leikheimild með liðinu og gæti því verið í hóp í fyrsta sinn í dag þegar Haukar taka á móti Víkingi Ólafsvík í 2. umferð Inkasso-deildarinnar.
Þorsteinn var fyrr í vetur lánaður í Þrótt R. og kom inná sem varamaður í 4-0 sigri liðsins á Kára í Mjólkurbikarnum.
Hann lék fimm mínútur með KR í Pepsi-deildinni í fyrra þegar hann kom inná sem varamaður í 4-0 tapi gegn FH.
Hann lék fimm mínútur með KR í Pepsi-deildinni í fyrra þegar hann kom inná sem varamaður í 4-0 tapi gegn FH.
