FH hefur lánað markvörðinn Daða Frey Arnarsson í Kórdrengi.
Daði er kominn með leikheimild og gæti spilað með Kórdrengjum þegar liðið mætir Fylki í 2. umferð Lengjudeildarinnar á föstudag.
Daði er kominn með leikheimild og gæti spilað með Kórdrengjum þegar liðið mætir Fylki í 2. umferð Lengjudeildarinnar á föstudag.
Daði er 23 ára gamall og lék á sínum tíma fimmtán landsleiki fyrir yngri landsliðin.
Hann varði mark FH í fimmtán leikjum sumarið 2019 og í fyrra var hann á láni hjá Þór í Lengjudeildinni.
Í febrúar á þessu ári var Daði sendur í leyfi frá FH vegna ásakana í hans garð.
Athugasemdir