Fotbolti.net
11.06.18 - 17:01
Ívan Guðjón Baldursson

Aðstoðarþjálfari City fær tækifærið hjá New York (Staðfest)

Aðstoðarþjálfari City fær tækifærið hjá New York (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

New York City FC er búið að staðfesta að Domenec Torrent tekur við liðinu eftir brottför Patrick Vieira.

Vieira var aðstoðarþjálfari hjá Manchester City áður en hann fékk starfið hjá New York, sem er systurfélag Man City.
Torrent var, líkt og Vieira, aðstoðarþjálfari hjá City. Hann var einn af þremur aðstoðarþjálfurum félagsins og hefur fylgt Pep Guardiola frá tíð hans í Barcelona.

New York hefur gert mjög vel undir stjórn Vieira og er liðið í öðru sæti í austurhluta MLS deildarinnar, tveimur stigum frá toppliði Atlanta.

New York hefur endað síðustu tvö tímabil í öðru sæti austurhlutans. Bæði tímabilin tapaði liðið í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar, gegn Toronto 2016 og Columbus Crew í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.