Fotbolti.net
11.06.18 - 11:46
Ívan Guðjón Baldursson

Deulofeu til Watford (Staðfest)

Deulofeu til Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Watford er búið að festa kaup á spænska sóknarmanninum Gerard Deulofeu. Hann skrifar undir fimm ára samning.

Deulofeu kemur frá Barcelona en hann spilaði sjö úrvalsdeildarleiki á láni hjá Watford í vor.
Watford borgar 11.5 milljónir punda fyrir Deulofeu sem er 24 ára gamall. Hann á aðeins 4 A-landsleiki að baki þrátt fyrir að hafa verið helsta stjarna U21 liðsins, þar sem hann gerði 17 mörk í 36 leikjum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Deulofeu kemur í enska boltann en honum tókst ekki að sanna sig á tveimur árum hjá Everton.

✍️ | #GerardsBack 🙌@gerardeulofeu #watfordfc pic.twitter.com/Lof1vAmWGs

— Watford Football Club (@WatfordFC) June 11, 2018


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.