Fotbolti.net
11.06.18 - 14:22
Ívan Guðjón Baldursson

Graham Potter tekinn við Swansea (Staðfest)

Graham Potter tekinn við Swansea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Graham Potter er nýr stjóri Swansea City í enska boltanum. Hann er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við velska félagið.

Potter kom víða við í enska boltanum sem leikmaður, mest í neðri deildum, og tók við Östersund árið 2011. Hann hefur gert magnaða hluti með sænska félagið á sjö árum og komst í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á nýliðnu tímabili, þar sem lærisveinum hans tókst að leggja Arsenal að velli á Emirates.
Carlos Carvalhal var látinn fara eftir að Swansea féll úr ensku úrvalsdeildinni og tekur Potter við af honum.

Mögulegt er að stjórinn taki einhverja leikmenn með sér til Swansea úr sænska boltanum en félagið stefnir á að fara beint aftur upp.

Potter hefur gífurlega reynslu af því að fara upp um deildir. Hann tók við Östersund þegar félagið var í neðri deildum Svíþjóðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.