Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 11. júní 2019 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Daniel James líkt við Bolt og Ronaldo
Mynd: Getty Images
Wales mætir í kvöld liði Ungverja í Ungverjalandi í undankeppni EM2020.

Daniel James hefur verið mikið í umræðunni og er hann svo gott sem orðinn leikmaður Manchester United, allt nema formsins vegna.

Marco Ross, landsliðsþjálfari Ungverjalands, hefur legið yfir landsliði Wales og tjáði hann sig um James í viðtali fyrir leik þjóðanna í kvöld.

„Hraði James minnir mig á Usain Bolt - ótrúlegur hraði," sagði Ross í gær.

„Hann er ótrúlega snögggur af stað sem er augljóslega það sem heillaði Manchester United."

„Ég spilaði gegn næstbesta leikmanni sögunnar, Ronaldo (frá Brasilíu), hröðun hans minnir mig á James, þó að James búi ekki yfir sömu tækni og Ronaldo gerði."


Athugasemdir
banner
banner