Fotbolti.net
11.07.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Alessio Cerci til Hellas Verona (Staðfest)

Fyrir þremur árum var hann seldur á 16 milljónir, nú er hann mættur til Verona

Alessio Cerci til Hellas Verona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Hellas Verona hefur staðfest komu kantmannsins Alessio Cerci til félagsins.

Hann er sagður hafa skrifað undir eins árs samning hjá Verona, sem mun spila í deild þeirra bestu á Ítalíu á næsta tímabili.
Cerci var án liðs eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Atletico Madrid fyrir tveimur vikum síðan.

Síðustu þrjú ár hafa ekki verið góð fyrir hinn 29 ára gamla Cerci, en hann ætlar nú að sýna sig og sanna hjá Hellas Verona.

Fyrir þremur árum síðan borgaði Atletico Madrid 16 milljónir evra fyrir hann, en hann lék einungis þrjá leiki áður en hann var lánaður til AC Milan. Hann spilaði lítið fyrir Atletico þegar hann sneri síðan aftur til félagsins og nú fær hann tækifæri til að byrja upp á nýtt.

🎥 Il saluto di @ale_cerci_7 ai tifosi gialloblù! Alessio vi aspetta al ritiro di #Primiero2017 💛💙✌#daiVerona #VeronaGialloblu pic.twitter.com/zl1dEn6jsm

— Hellas Verona FC (@HellasVeronaFC) July 10, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.