11.07.17 - 23:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Jack Cork til Burnley (Staðfest)

Jack Cork er farinn til Burnley

Mynd: Getty Images

Jack Cork er farinn til Burnley

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Jack Cork er genginn til liðs við Burnley frá Swansea í ensku úrvalsdeildinni. Kaupverðið er talið nema um 10 milljónum punda og skrifaði Cork undir fjögurra ára samning.
Cork er ekki ókunnugur Burnley en hann var á láni hjá félaginu tímabilin 2009-10 og 2010-11. Hann átti aðeins eitt ár eftir að samningi sínum við Swansea.
Cork kom til Swansea frá Southampton árið 2015 og var hann varafyrirliði liðsins á síðasta tímabili og bar bandið oftar en ekki þar sem fyrirliði liðsins Leon Britton spilaði ekki marga leiki.
Hann spilaði 33 leiki fyrir Swansea á síðustu leiktíð en taldi sig eiga undir högg að sækja eftir að Swansea keypti Roque Mesa frá Las Palmas í síðustu viku.