11.07.17 - 08:39
Arnar Daði Arnarsson
KR fær danskan framherja (Staðfest)

KR fær danskan framherja.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

KR hefur keypt danska framherjan André Bjerregaard frá danska úrvalsdeildarfélaginu, AC Horsens. Þetta staðfestir danska félagið á heimasíðu sinni.
Bjerregaard er 25 ára gamall og hefur leikið undanfarin ár með AC Horsens og þar hefur hann verið liðsfélagi fyrrum KR-ingsins, Kjartans Henry Finnbogasonar.
Hann hefur skorað 18 mörk í 157 leikjum með Horsens frá árinu 2010.
„Ég vil prófa eitthvað annað eftir sjö ár í AC Horsens og ég er spenntur fyrir nýjum kafla á ferlinum. Það hefur verið frábært að vera hluti af AC Horsens og það var stór draumur rætast þegar ég gekk í raðir félagsins,\" sagði André Bjerregaard nýjasti leikmaður KR í samtali við heimasíðu Horsens.
Næsti leikur KR í Pepsi-deildinni er gegn Stjörnunni á sunnudaginn, 16. júlí. Það er spurning hvort Bjerregaard verði orðinn löglegur fyrir þann leik en félagaskiptaglugginn á Íslandi opnar á laugardag.