11.07.17 - 19:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Mandanda aftur til Marseille (Staðfest)

Mandanda er kominn aftur til Marseille

Mynd: Getty Images

Mandanda er kominn aftur til Marseille

Mynd: Getty Images
Franski markvörðurinn Steve Mandanda, er aftur genginn til liðs við sitt gamla félag Marseille eftir ársdvöl hjá Crystal Palace á Englandi. Kaupverðið er óuppgefið en hann skrifar undir þriggja ára samning við franska félagið.
Mandanda kom til Crystal Palace á frjálsri sölu síðasta sumar en spilaði aðeins 9 leiki fyrir félagið bæði í deild og bikar. Mikil meiðsli hrjáðu Frakkann á síðasta tímabili sem gerði það að verkum að hann náði ekki að spila nema þessa örfáu leiki fyrir félagið.
Nú er hann haldinn heim á leið til Marseille þar sem hann lék áður 443 leiki frá árunum 2008-2016, þar sem hann vann franska meistaratitilinn í eitt skipti og þrjá bikartitla.
Nú er hann haldinn heim á leið til Marseille þar sem hann lék áður 443 leiki frá árunum 2008-2016, þar sem hann vann franska meistaratitilinn í eitt skipti og þrjá bikartitla.
