Fotbolti.net
11.07.17 - 18:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mario Suarez til Guizhou Zhicheng (Staðfest)

Mario Suarez til Guizhou Zhicheng (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski miðjumaðurinn Mario Suarez er farinn til Kína. Hann hefur skrifað undir samning við Guizhou Zhicheng.

Hann kemur til Guizhou frá enska liðinu Watford.

Hann var lánaður til Valencia á síðustu leiktíð og var ekki inn í myndinni hjá Marco Silva fyrir næsta tímabil.
Suarez ákvað því að færa sig yfir í kínversku ofurdeildina, til Guizhou, sem er í 11. sæti deildarinnar eftir 16 leiki.

Hann er ekki eini leikmaðurinn hjá liðinu sem er með reynslu úr ensku úrvalsdeildinni, því króatíski sóknarmaðurinn Nikica Jelavic er einnig á mála hjá liðinu. Hann er í láni frá Beijing Renhe.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.